Umsóknarfrestur er til 30. mars
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Lóu - nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina. Lóa eru nýsköpunarstyrkir sem hafa það hlutverk að styðja við eflingu byggða og landshluta með nýskapandi verkefnum. Styrkjunum er aðeins úthlutað til verkefna utan höfuðborgarsvæðisins í þeim tilgangi að styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni. Sjóðurinn er ætlaður verkefnum sem komin eru af byrjunarstigi og er heildarfjárhæð hans í ár 100 milljónir króna.
Við mat á nýnæmi verkefna er stuðst við skilgreiningu OECD um nýsköpun. Nýsköpun er skilgreind sem innleiðing nýrrar eða mjög endurbættrar vöru, þjónustu eða ferils, nýrrar aðferðar til markaðssetningar eða nýrrar skipulagsaðferðar í viðskiptaháttum, skipulagi á vinnustað eða ytri samskiptum.
Vakin er athygli á að styrkirnir eru einnig fyrir verkefni sem styðja við uppbyggingu á vistkerfi fyrir nýsköpunarstarfsemi og frumkvöðlastarf á forsendum svæðanna. Slík verkefni munu þó ekki nema meira en helmingi þeirra verkefna sem hljóta úthlutun.
Umsóknarfrestur er til og með 30. mars 2026. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar um Lóu styrki má nálgast hér.