11. maí 2026
Áætlað er að hefja framkvæmdir við heflun og klæðingu á um tveggja kílómetra kafla á Landvegi, frá Kelduholti og norður fyrir afleggjara að Holtsmúla, þriðjudaginn 12. maí og miðvikudaginn 13. maí.
Framkvæmdirnar verða unnar í tveimur áföngum og verður nauðsynlegt að loka viðkomandi vegkafla fyrir almennri umferð á meðan klæðingarvinna stendur yfir. Hjáleið verður um Bjallaveg og Árbæjarveg.
Vegkaflinn verður þó opnaður bæði kvöldin til að tryggja flutninga Bergen Spesial fyrir Vaðölduver.
Verktaki framkvæmdarinnar er Þjótandi ehf. og sér fyrirtækið jafnframt um allar vinnusvæðamerkingar.