01. júní 2026
Búið er að ráða Magdalenu Przewlocka í starf deildarstjóra kennslu við Grunnskólann Hellu næsta skólaár.
Magdalena hefur starfað við Helluskóla frá 2008 sem umsjónarkennari og stigstjóri á elsta stigi.
Hún hefur diplómu í Menntun fyrir alla frá Háskóla Íslands þar sem m.a er lögð áhersla á þróun stoðþjónustu og samstarf fagaðila.
Við óskum Magdalenu hamingju með starfið og hlökkum til samstarfs við hana.
- Grunnskólinn Hellu