02. júlí 2026
Markaðstjaldið hefur verið fastur liður á Töðugjöldum en í ár verður markaðurinn haldinn í íþróttahúsinu á Hellu laugardaginn 15. ágúst.
Öllum er velkomið að taka þátt og þau sem vilja setja upp sölubás greiða ekkert fyrir aðstöðuna.
Hvort sem þú ert einstaklingur sem langar að selja notaða hluti eða fatnað, fyrirtæki á svæðinu sem vill koma vörum sínum á framfæri eða framleiðandi sem vill kynna sig og sína framleiðslu, hvetjum við öll áhugasöm til að taka þátt.
Öll sala er á ábyrgð seljanda og gerð er krafa um góða umgengni og heiðarlega viðskiptahætti.
Þetta þurfa seljendur að hafa í huga:
- Krafa er gerð um góða umgengni og frágang. Allt rusl skal fjarlægt eftir markaðinn og óheimilt er að skilja eftir hluti sem ekki seljast.
- Hver og einn ber ábyrgð á eigin sölu. Sveitarfélagið er hvorki milliliður né ábyrgðaraðili hvað varðar sölu.
- Markaðurinn stendur yfir frá kl. 12:00 til 16:00 en hægt verður að hefja undirbúning fyrr. Nánara skipulag verður rætt við þau sem bóka pláss.
Fyrirspurnir og bókanir sendist á helga@ry.is.