Matráður óskast að Laugalandi

Laugalandsskóli í Holtum óskar eftir matráð í 100% starfshlutfall. Viðkomandi þyrfti að geta byrjað sem fyrst. Matráður skólans undirbýr og matreiðir máltíðir leik- og grunnskóla. Hann sér um að útbúinn sé hollur og fjölbreyttur matur fyrir nemendur og starfsfólk. Leitað er að metnaðarfullum, barngóðum og jákvæðum einstaklingi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Útbýr hádegisverð fyrir nemendur og starfsfólk leik- og grunnskóla.
  • Hefur umsjón með þrifum í matsal og mötuneyti.
  • Sér um innkaup á matvöru, áhöldum og tækjum í mötuneyti.
  • Skipuleggur matseðla, allt að mánuð fram í tímann.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir Jónas Bergmann Magnússon, skólastjóri, í síma 8699010.

Umsóknarfrestur er til og með 7. júní og skal senda umsóknir ásamt starfsferliskrá á tölvupósti á netfang skólastjóra: jonas@laugaland.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?