Matráður óskast við Laugalandsskóla

Matráður í skólamötuneyti í 100% stöðu

Laugalandsskóli óskar eftir matráð í 100% starfshlutfall. Viðkomandi þyrfti að geta byrjað sem fyrst. Matráður skólans undirbýr og matreiðir máltíðir í leik- og grunnskóla. Hann sér um að útbúinn sé hollur og fjölbreyttur matur fyrir nemendur og starfsfólk. Leitað er að metnaðarfullum, barngóðum og jákvæðum einstaklingi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Útbýr hádegisverð fyrir nemendur og starfsfólk leik og grunnskóla.
  • Hefur umsjón með þrifum á matsal og í mötuneyti.
  • Sér um innkaup á matvöru, áhöldum og tækjum í mötuneyti.
  • Skipuleggur matseðla, allt að mánuð fram í tímann.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir Jónas Bergmann Magnússon skólastjóri í síma 8699010.
Umsóknarfrestur er til og með 15. júní og skal senda umsóknir ásamt starfsferilskrá í tölvupósti á netfang skólastjóra; jonas@laugaland.is