Meðmælasöfnun vegna framboða til sveitarstjórnarkosninga

Yfirkjörstjórn Rangárþings ytra hefur opnað fyrir rafræna meðmælendasöfnun fyrir framboð til sveitarstjórnar á vef Ísland.is

Sjá hér: Stofna meðmælasöfnun vegna framboðs til sveitarstjórnar | Ísland.is

Mælst er til þess að oddvitar framboða stofni söfnun en nafn þeirra og fæðingardagur birtist sem stofnandi söfnunar.

Einnig er heimilt að safna meðmælum á pappír en mælst er til þess að þau séu slegin inn í rafræna meðmælendakerfið áður en frumritum meðmælanna er skilað inn ásamt framboðstilkynningu.

Hér er sniðmát að söfnun meðmæla á pappír sem framboð geta nýtt sér.

Hægt er að mæla með framboðum hér: Mæla með framboði í sveitarstjórnarkosningum 2026 | Ísland.is

 

Fjöldi íbúa í Rangárþingi ytra er 2079 samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár Íslands.

Í sveitarfélagi með 2.001 – 10.000 íbúa þarf hvert framboð 40 meðmælendur.

Hámarksfjöldi meðmælenda er tvöföld þessi tala.

 

Yfirkjörstjórn Rangárþings ytra.