Menningararfur - skiptir hann þig máli?

Ef svarið er já, þá átt þú erindi á umræðufund um óáþreifanlegan menningararf og kynningu á sáttmála UNESCO um verndun hans.

21. - 23. janúar verða haldnir fjórir umræðu- og kynningarfundir á suðurlandi um óáþreifanlegan menningararf (menningarerfðir) og sáttmála UNESCO um verndun hans.

Fundirnir á Hvolsvelli og á Klaustri verða í samstarfi við Brynju Davíðsdóttur framkvæmdastjóra Kötlu Jarðvangs sem fer yfir stöðu jarðvangsins eftir úttekt matsmanna og innleiðingu í UNESCO Global Geoparks 2015.

Menningarerfðir eru til dæmis þekking og kunnátta sem tengist reykingu, söltun og súrsun matvæla, hestamennsku, þorrablótum, sauðfjárbúskap, vefnaði, kveðskap, þjóðdansi, þjóðbúningum, útskurði og eggjatöku; að kæsa hákarl, smíða trébát og vinna með ull.

Fundirnir eru í tengslum við verkefni á vegum menntamálaráðuneytinsins og er markmiðið að:
• koma af stað umræðu um menningarerfðir
• fá hugmyndir um menningarerfðir sem fólkinu í landinu finnst mikilvægt að vernda
• fá upplýsingar um félög / hópa sem starfa á sviði menningarerfða
• kynna sáttmála UNESCO um verndun menningarerfða en lykilatriði hans er að við sem landið byggjum segjum til um hvað eru menningarerfðir okkar og hvernig best sé að vernda þær.

Fundatímar:
• Selfoss - Fjölheimar, fimmtudaginn 21. janúar kl. 18:00
• Hvolsvöllur - Hótel Hvolsvöllur, föstudaginn 22. janúar kl. 11:30 (súpufundur)
• Kirkjubæjarklaustur - Kirkjubæjarstofa, föstudaginn 22. janúar kl. 20:00
• Höfn í Hornafirði - Nýheimar, laugardaginn 23. janúar kl. 13:00

Hlökkum til að sjá ykkur
Guðrún Ingimundardóttir og Brynja Davíðsdóttir

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?