Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki.

Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki

Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi geta sótt um styrki en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Heimilt er að sækja um styrk til verkefna sem umsækjandi er þegar byrjaður að vinna í.

Menningarráð Suðurlands hefur ákveðið að árið 2014 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

1.Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.

2.Verkefni sem efla nýsköpun tengd menningu.

3.Verkefni sem stuðla beint að fjölgun atvinnutækifæra.

4.Verkefni sem styðja við menningartengda ferðaþjónustu.

5.Verkefni sem draga fram staðbundin eða svæðisbundin menningareinkenni eða menningararf.

Menningarráðið mun ekki veita endurbótastyrki. Ekki verður heldur styrkt skráning á menningarminjum, starfsemi íþróttafélaga, bæjarhátíðir, almennar samkomur, safnaðarstarf og hefðbundið menningarstarf innan skóla.

Menningarráð Suðurlands auglýsir stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála

(styrkir sem Alþingi veitti áður)

Tilgangur styrkjanna er að stuðla að því að efla starfsemi á sviði lista, safna og menningararfs. Styrkveitingarnar miðast við árið 2014.

Umsóknarfrestur í báðum flokkum er til og með 20. febrúar 2014.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum eyðublöð á heimasiðu Menningarráðs Suðurlands www.sunnanmenning.is. Allar nánari upplýsingar veitir Dorothee Lubecki, menningarfulltrúi Suðurlands, í síma 480-8207, 896-7511 eða með tölvupósti menning@sudurland.is.

Menningarfulltrúi verður til viðtals í öllum sveitarfélögum.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?