Metnaðarfull uppbygging í mjólkurframleiðslu í Rangárþingi ytra

Það er ánægjulegt og spennandi að sjá metnaðarfull áform bænda á Bjólu og Saurbæ. Uppi eru fyrirætlanir um að reisa ný og tæknivædd fjós, alls tæpa 5.000 fermetra að stærð.

Áformin á Bjólu eru bygging á um 3.700 fermetra stóru fjósi sem verður að mestu eitt stórt rými. Þar verður lausaganga gripa á rimlagólfi og legubásar fyrir rúmlega 300 kýr auk burðar-, velferðar- og meðferðarstía og sérstakrar aðstöðu fyrir ungkálfa.

Fjórir mjaltaþjónar verða í fjósinu ásamt aðstöðurými, tæknirými, mjólkurhúsi og fóðureldhúsi. Undir húsinu verður haugkjallari og fóðurgangar verða eftir langhliðum beggja vegna.

 

Fjósið á Bjólu verður hið glæsilegasta. Mynd: Efla.

Í Saurbæ er fyrirhugað að reisa tæplega 1.000 fermetra stálgrindarhús með haugkjallara undir stórum hluta hússins. Líkt og á Bjólu verður fjósið að mestu eitt stórt aðalrými með rimlagólfi og lausagöngu gripa. Alls verða legubásar fyrir 82 kýr og gert ráð fyrir tveimur mjaltaþjónum.

Þá er gert ráð fyrir burðar- og velferðarsvæði, sæðingarbásum og svæði fyrir geldkýr ásamt aðstöðu fyrir ungkálfa. Aðstöðurými svo sem mjólkurhús, tæknirými og inngangur verða í norðurhluta fjóssins en fóðurgangur fyrir gripasvæði í austari hlutanum. Gjafakerfi er þá vestast í byggingunni.

Áformin á Saurbæ og Bjólu eru gott dæmi um þá tæknivæðingu og þróun sem hefur orðið í íslenskum kúabúskap á undanförnum árum. Sjálfvirk mjaltakerfi og aukin vélvæðing við fóðrun og umhirðu hafa orðið æ algengari samhliða endurnýjun fjósa og uppbyggingu á bújörðum.

Samkvæmt upplýsingum Bændasamtaka Íslands voru rúmlega 25 þúsund mjólkurkýr á 466 kúabúum hér á landi árið 2024 og nam árleg mjólkurframleiðsla þeirra um 151 milljón lítra. Uppbygging af þessu tagi getur því falið í sér umtalsverða langtímafjárfestingu í húsakosti og tæknibúnaði.

Fyrirhuguð uppbygging á bæjunum er umfangsmikil fjárfesting í mjólkurframleiðslu og jákvætt merki um trú á framtíð landbúnaðar á svæðinu. Sveitarfélagið fagnar langtímafjárfestingum í landbúnaði sem styrkja atvinnulíf á svæðinu og styðja við blómlegt hérað með vaxandi landbúnaði.