Mótorcross braut opnuð á Hellu!

Það var margt um manninn þegar mótorcross brauton opnaði á Hellu þann 1. júlí s.l.

Þann 1. Júlí var svæði undir akstur vélhjóla á vegum akstursíþróttadeildar Ungmennafélagsins Heklu opnað formlega með athöfn. Málið á sér langan aðdraganda en hugmyndin kom upp fyrst í september 2019 og var síðan tekin fyrst formlega fyrir í stjórnsýslunni í með umfjöllun Skipulagsnefndar í mars 2021. Síðan þá hefur málið farið í gegnum skipulagsferli með breytingu á aðalskipulagi og gerð deiliskipulags sem samþykkt var í sveitarstjórn þann 12. maí 2022.

Það er mikið fagnaðarefni að akstursíþróttafólk fái nú loks sérhannað og afmarkað svæði til iðkunar á þessari íþrótt en vandað hefur verið til verka og umgjörð öll til fyrirmyndar.

Til hamingju með nýtt og glæsilegt svæði!

Eggert Valur Guðmundsson afhendir Atla Má Guðnasyni blómvönd í tilefni dagsins. 

Allir sem fara í brautirnar þurfa að vera búnir að nálgast aðgöngumiða í OLÍS á Hellu.

Brautin er staðsett rétt austan við Hellu og fer ekki framhjá þér, farið er upp afleggjarann að Gunnarsholti.

Umgengis og öryggisreglur sem gilda fyrir akstursíþróttasvæði umf. Heklu

  1. Öll mótorhjól, fjórhjól sem eru skráningarskyld verða að vera löglega skráð og tryggð samkvæmt íslenskum lögum.
  2. Allir ökumenn þessara tækja skulu hafa tilskilin ökuréttindi miðað við aldur og stærð ökutækis samkvæmt íslenskum lögum og reglum.
  3. Ef ekki er uppfyllt skilyrði reglna númer 1 og 2 þá hafa ökumenn ekki heimild til aksturs á svæði Umf. Heklu.
  4. Allur akstur er bannaður á grónum og nýsáðum svæðum. Ökumenn skulu koma með hjólin á kerru/pallbíl á svæðið, gildir fyrir hjól á rauðum númerum.
  5. Öll börn, ungmenni og unglingar sem ekki hafa útgefið ökuskírteini af sýslumanni verða að vera í umsjón lögráða umsjónarmanna allan tímann meðan ekið er á svæðinu.
  6. Allur akstur á svæðinu skal vera ábyrgur, ökumenn skulu vera hugsandi, ökumenn skulu hafa gát í sínum akstri og stofna hvorki sjálfum sér eða öðrum í óþarfa hættu.
  7. Í öllum almennum akstri á svæðinu skulu ökumenn leitast við að hafa samræmi í akstri sínum við aðra ökumenn á svæðinu. Til dæmis koma sér saman um ökuleiðir í braut og forðast að ökuleiðir krossist. Aka skal eftir stefnu brautarinnar eins og hún er sett upp.
  8. Það er skylda við akstur á braut að nota viðeigandi hlífarbúnað, svo sem : Hjálm, krossaraskó, hnéhlífar, brynju og olbogahlífar. Einnig skal ökumaður vera í viðeigandi fatnaði sem stuðlar að öryggi hans.
  9. Opnunartímar á svæðinu : Svæðið er opið frá apríl til september, svæðisnefnd getur þó opnað svæðið fyrr eða síðar ef árferði og nefndin telur það í lagi. Svæðið er opið frá 11:00-21:00 nema annað verði auglýst í samráði við sveitarfélagið.

Bannað er að aka á svæðinu nema búið sé að greiða fyrir, hægt er að kaupa miða í braut á Olís á Hellu.

Ársgjald fyrir 16 ára og eldri er 18.000 kr fyrir braut 3.

Árgjald fyrir félagsmenn í Umf. Heklu í braut 3 er 15.000kr.

Dagpassi fyrir 12 ára og eldri kostar 3.000kr.

Frítt er fyrir minni hjól og byrjendur í braut 1 og 2. Gjald er alltaf tekið fyrir braut 3 óháð aldri.

A.T.H. Gullkort MSÍ gilda ekki árið 2023 á Hellu.

Fyrir nánari upplýsingar skal senda póst á velhjolheklu@gmail.com

Akstursbrautir Umf Heklu eru þrjár,

Braut 1. Púkabrautin fyrir okkar yngstu byrjendur sem eru að stíga sín fyrstu skref í motocrossi.

Braut 2. Byrjandabraut, fyrir byrjendur yngri enn 12 ára.

Braut 3. Löggild keppnisbraut sem er 1.9 km á lengd, fyrir ökumenn eldri enn 12 ára. í komandi framtíð mun braut 4 bætast við og verður það hardenduro braut.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?