Naflahlaupið 2015

27.06.2015 - Naflahlaupið
Naflahlaupið verður haldið laugardaginn 27. júní nk. og hefst á eftirfarandi tímum:

21 km - ræst klukkan 10:00. (Naflahringurinn)
13 km - ræst klukkan 10:30. (Naflastrengurinn)
5,3 km - ræst klukkan 11:00. (Naflakuskið)

Naflahlaupið var fyrst haldið sumarið 2010. Nafnið er vísun til þess að um nafla alheimsins sé að ræða en það ár beindust allra augu að þessu svæði vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Naflahlaupið var viðleitni einstaklinga til að sýna fram á að þrátt fyrir allt væri öllu óhætt á þessu svæði, í Naflanum væri hreint og tært loft og góðar aðstæður til útivistar.

Vegalengdir
21 km, 13 km og 5,3 km. Öllum er þó velkomið að slást í hópinn hvar sem er og velja þannig þá vegalengd sem hentar hverjum og einum.

Hlaupaleið
21 km - Lagt er af stað frá Leikskólanum Örk á Hvolsvelli. Hlaupið upp hjá Sólheimum, hjá Lynghaga, Hjarðartúni, Miðtúni og Akri, svo niður hjá Nýbýlavegi og þaðan götur þræddar (sjá kort). Haldið áfram inn Fljótshlíðarveginn alla leið að Hótel Fljótshlíð, Smáratúni.

13 km - Hlaupið frá Leikskólanum Örk á Hvolsvelli að Hótel Fljótshlíð, Smáratúni.

5,3 km - Hlaupið er frá skógræktarstöðinni á Tumastöðum að Hótel Fljótshlíð, Smáratúni.

Drykkjarstöðvar eru á leiðinni.

Sjá líka kort af leiðinni á síðunni.

Skráning
Gott að skrá sig á Facebooksíðu Naflahlaupsins með því að skrá sig „attending". Facebooksíða hlaupsins er Naflahlaupið 2015.

Þáttökugjald er 1000 krónur og lagt er inn á reikning Naflahlaupsins 0182 - 05 - 60512. Kt. 260787-2929 Í athugasemdum á að vera nafn, bolastærð keppanda og kílómetrar.
Þeir sem vilja fá boli verða að skrá sig og borga þáttökugjald fyrir 20. júní.

Dæmi: Jón Jónsson - L - 21 km

Flottir vinningar eru í boði og hressing við endamarkið í Hótel Fljótshlíð.

Áheit
Eins og síðast er hægt að skora á hlaupara og heita á þá.
2010 rann ágóðinn til Leikskólans Arkar.
2011 rann ágóðinn í starfsemi sjúkraflutinga á Hvolsvelli.
2012 rann ágóðinn til unglingadeildar Dagrenningar.
2013 rann ágóðinn til Grunnskólans á Hvolsvelli.
2014 rann ágóðinn til Elliheimilisins Kirkjuhvols.
Í ár mun ágóðinn renna til Lundar á Hellu.

Um að gera að láta heita á sig til styrktar góðu málefni.

Hver hlaupari ber ábyrgð á að nálgast áheit sín til áskoranda og skila til framkvæmdastjóra hlaupsins sem koma þeim í réttar hendur að hlaupi loknu.

Nánari upplýsingar
Framkvæmdastjórar hlaupsins eru Jón Gísli Harðarson og Ómar Smári Jónsson.
Nánari upplýsingar veita þeir félagar í síma 864 2288 (Jón Gísli) og 848 1466 (Ómar Smári).

Skoðaðu meiri upplýsingar um hlaupi á facebook, Naflahlaupið 2015

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?