Námskeið fyrir börn og unglinga í golfi.

Golfklúbbur Hellu (GHR) ætlar að vera með námskeið í golfi fyrir börn og unglinga í sumar á Strandarvelli. Áætlað er að vera með fjögurra vikna námskeið tvisvar í viku hverri, tvo tíma í hvert sinn síðdegis eftir kl. 16.00 nánari tímasetning ákveðin seinna. Fyrsti tími verður 28. maí. Aðrir tímar verða á miðvikudögum og föstudögum með möguleika að færa til vegna veðurs eða annara ástæðna.

Þetta námskeið verður ókeypis fyrir þátttakendur.

Kennari verður Ingibergur Jóhannsson PGA golfkennari

Gott væri að þeir sem áhuga hafa á námskeiðinu sendi póst á ghr@ghr.is svo hægt sé að senda nánari tímasetningu þegar nær dregur.