Veiðivötn
Veiðivötn

Rangárþing ytra auglýsir netaveiðirétt í Veiðivötnum, fyrir jarðirnar Merkihvol, Réttarnes og Nefsholt II, lausar til umsókna. Um er að ræða veiðirétt næstu þrjú veiðitímabil, þ.e. fyrir árin 2023 til og með 2025.

Tilboðsgjöfum er bent á að skila inn tilboðum á skrifstofu Rangárþings ytra eða á netfangið ry@ry.is merkt „Veiðiréttur“ fyrir 8. maí nk. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Rangárþings ytra mánudaginn 8. maí kl. 10. Sveitarstjórn áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum.

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu sveitarfélagsins.

Jón G. Valgeirsson
sveitarstjóri

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?