Rangárþing ytra auglýsir netaveiðirétt í Veiðivötnum, fyrir jarðirnar Merkihvol, Réttarnes og Nefsholt II, lausar til umsókna. Um er að ræða veiðirétt næstu þrjú veiðitímabil, þ.e. fyrir árin 2026 til og með 2028.
Tilboðsgjöfum er bent á að skila inn tilboðum á skrifstofu Rangárþings ytra eða á netfangið ry@ry.is merkt „Veiðiréttur“ fyrir 8. apríl nk. Sveitarstjórn áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum.
Leyfin veita rétt til netaveiði í Veiðivötnum að hausti. Hægt er að bjóða í eitt eða fleiri leyfi.
Reglur Veiðifélags Landmannaafréttar gilda um veiðina en nánari upplýsingar eru á heimasíðu félagsins, Veiðivötn.is.
Nánari upplýsingar um veiðileyfin eru veittar á skrifstofu sveitarfélagsins, á ry@ry.is eða í síma 4887000.
Jón G. Valgeirsson
sveitarstjóri