Elín Stolzenwald formaður Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu afhendir Jóni Valgeirssyni sveitarstjóra…
Elín Stolzenwald formaður Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu afhendir Jóni Valgeirssyni sveitarstjóra Rangárþings ytra neyðarkallinn 2022

Rangárþing ytra kaupir stóra neyðarkallinn af Flugbjörgunarsveitinni á Hellu

Árlegt fjáröflunarátak

Neyðarkall björgunarsveitanna á sér orðið langa sögu að baki þar sem það hófst 2006 og er því um að ræða 17. skipti sem björgunarsveitirnar bjóða almenningi að styðja starf þeirra með því að kaupa Neyðarkall.

Hagnaður af sölunni rennur til björgunarsveita og slysavarnadeilda og er hann notaður til að efla og styrkja starfið. Í gegnum tíðina hefur almenningur haft mikinn skilning á störfum björgunarsveita enda veit fólk að þegar neyðarkall berst bregðast þær hratt við með allan sinn mannskap, búnað, tækni og þekkingu.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?