Ný skoðanakönnun og niðurstöður síðustu könnunar

Ný skoðanakönnun hefur verið sett inn á heimasíðuna.  Af nægu er að taka en fyrir valinu varð viðhorfskönnun vegna nýs almenningssamgöngukerfis, Strætó á Suðurlandi, sem tekið var í notkun um síðustu áramót.  Íbúar í Rangárþingi ytra eru hvattir til að taka þátt.  Veljið viðeigandi hnapp hægra megin á forsíðunni undir viðburðadagatalinu.

Um leið og ný skoðanakönnun var sett inn var lokað fyrir skráningar í þeirri könnun sem hafði verið opin frá 15. apríl síðastliðnum.  Ágæt þátttaka var í síðustu könnun og voru 99 atkvæði skráð. 

Niðurstöður könnunarinnar voru afgerandi og munu vafalaust vera ágæt vísbending til starfsmanna sveitarfélagsins sem og til kjörinna fulltrúa sem taka ákvarðanir í málaflokknum.  Niðurstöður má sjá hér að neðan.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?