Ný þjónusta sem býður fyrirtækjum í ferðaþjónustu að auglýsa frítt

Vefsíðan www.wheniniceland.com er ný þjónusta sem hefur það að markmiði að auðvelda erlendum ferðamönnum að finna þjónustu og afþreyingu við sitt hæfi á Íslandi. When in Iceland býður því íslenskum fyrirtækjum að auglýsa á vefsíðunni sér að kostnaðarlausu, en það eina sem fyrirtækin þurfa að gera er að skrá sig á vefsíðuna og setja inn þær upplýsingar sem fyrirtækið vill að komist til skila til þeirra erlendu ferðamanna sem hugsa sér að sækja landið heim. Þjónusta sem þessi hefur ekki verið veitt áður á Íslandi og er því til mikilla hagsbóta bæði fyrir ferðamenn og fyrirtæki í ferðaþjónustu.

Fyrirtæki í verslun og þjónustu í Rangárþingi ytra eru hvött til að nýta sér þessa þjónustu til markaðssetningar.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?