Ný tilkynning frá Veitum!

Bilun varð síðdegis á heitavatnslögn Veitna þar sem hún liggur yfir Ytri Rangá við Hellu. Því er heitavatnslaust á veitusvæðinu austan árinnar, þar með talið á Hellu og Hvolsvelli, og við Ægissíðu. Unnið er að viðgerð og reiknað er með að hún standi fram eftir kvöldi en að vatn komist þá á að nýju. fös. 16. nóvember kl. 16:00-23:30.

Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?