Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri og Vilhjálmur A. Einarsson handsala samninginn.
Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri og Vilhjálmur A. Einarsson handsala samninginn.

Vilhjálmur A. Einarsson hefur skrifað undir samning við sveitarfélagið um að leigja íþróttahúsið í Þykkvabæ og lóð tjaldsvæðisins þar við hliðina frá og með 1. maí næstkomandi til og með 31. ágúst næstkomandi.

Vilhjálmur er búsettur í Þykkvabæ og rekur þar gistiþjónustuna Helja Stay og veitingahúsið Hlöðueldhúsið. Hann mun reka tjaldsvæðið og íþróttahúsið undir fyrirtækinu Helja Stay ehf. og þjónusta þá aðila sem þegar eiga bókað fyrir sumarið og taka við öllum nýjum bóknunum.

Nýi leigutakinn mun fljótlega hafa samband við alla sem eiga bókað og þau sem vilja hafa samband við hann geta sent tölvupóst á villi@helja.is.

Helja Stay mun því taka alfarið við umsjón bókana fyrir umrætt tímabil, frá 1. maí–31. ágúst. Fyrri leigutaki og sveitarfélagið bera enga ábyrgð á umsjón og verðlagningu en slíkt er alfarið á ábyrgð nýs leigutaka.

Fyrirspurnir um bókanir utan tímabilsins 1. maí–31. ágúst skulu berast til forstöðumanns íþróttamannvirkja á ragnar@ry.is.

Við óskum Vilhjálmi og Helja Stay velfarnaðar í rekstrinum og vonum að gestir haldi áfram að njóta þeirrar frábæru aðstöðu sem þarna er til staðar.