Nýr skólastjóri valinn

Við upphaf hátíðlegrar brautskráningar hjá Tónlistarskóla Rangæinga í Hvolnum í dag tilkynnti Ágúst Sigurðsson stjórnarformaður skólans að Sigríður Aðalsteinsdóttir óperusöngkona hefur verið fastráðin sem skólastjóri. Staða skólastjóra var auglýst laus til umsóknar á dögunum og var Sigríður valin úr hópi mjög hæfra umsækjenda.

Sigríður lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík með 8 stig í söng og hljómfræði. Hún útskrifaðist síðan sem óperusöngkona frá Tónlistarháskólanum í Vínarborg. Þá lauk hún námi til kennsluréttinda frá Kennaraháskóla Íslands og MS gráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands árið 2013. Hún hefur víðtæka reynslu, m.a. sem fagstjóri Tónlistarskólans á Akureyri og söngkennari við Söngskóla Sigurðar Dementz Franssonar auk þess að gegna tímabundið starfi skólastjóra Tónlistarskóla Rangæinga á þessu skólaári. Almenn ánægja er með þessa ráðstöfun meðal kennara og nemenda skólans og íbúar í Rangárvallasýslu vænta mikils af Sigríði og bjóða hana innilega velkomna til starfa.

 

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?