Leifur Bjarki Björnsson slökkviliðsstjóri og Margrét Harpa Guðsteinsdóttir varaoddviti Rangárþings y…
Leifur Bjarki Björnsson slökkviliðsstjóri og Margrét Harpa Guðsteinsdóttir varaoddviti Rangárþings ytra standa hér við nýja bílinn. Margrét afhenti Leifi konfektkassa með hamingjuóskum frá Rangárþingi ytra við tilefnið.

Brunavarnir Rangárvallasýslu bs. fengu nýlega afhentan nýjan og glæsilegan slökkviliðsbíl. Bíllinn er gríðarlega vel tækjum búinn og eflir til muna öryggi okkar allra hvað varðar brunavarnir á svæðinu. 

Brunavarnir Rangárvallsýslu eru í sameign Ásahrepps, Rangárþings ytra og Rangárþings eystra og sinna brunavörnum í allri sýslunni.

Bíllinn er staðsettur í höfuðstöðvunum á Hellu og þann 11. febrúar var opið hús þar sem öllum bauðst að koma við og kíkja á bílinn. Boðið var upp á kökur og kaffi auk þess sem Bjössi brunabangsi kíkti í heimsókn við mikinn fögnuð yngri kynslóðarinnar.

Húsfyllir var á viðburðinum og þökkum við Leifi Bjarka Björnssyni slökkviliðsstjóra og félögum hans í slökkviliðinu kærlega fyrir heimboðið.

Við vonum auðvitað að það reyni sem minnst á nýja bílinn en það er gott að vita af honum og slökkviliðinu vaska ef til kemur.

Bjössi brunabangsi vakti mikla lukku meðal barnanna sem hópuðust að honum til að fá knús

 

Bíllinn er allur hinn glæsilegasti og afar vel búinn