26. mars 2026
Nýtt sorphirðudagatal Sorpstöðvar Rangárvallasýslu tekur gildi 1. apríl og gildir til 31. desember.
Breytingin er gerð til að hægt sé að nota eina sorpbifreið í alla losun, sem er bæði hagkvæmara og betra fyrir umhverfið.
Skoðið dagatalið vel því nokkuð er um breytingar frá fyrra skipulagi, t.d. færist losun á Hvolsvelli yfir á þriðjudaga.
Við minnum einnig á að skoða rauðu dagana vel því losunardagar geta verið breytilegir í kringum þá, einkum yfir páska og jól.
Hvað breytist:
- Hvolsvöllur færist yfir á þriðjudaga.
- Ásahreppur, Heiðarvegur og Hagabraut færast yfir á miðvikudaga.
- Austur Landeyjar, Hemla, Hvítanes og bæir að Stíflu, Hólma- og Vorsabæjarvegur og Rauðaskriður færast yfir á miðvikudaga.
- Eyjafjöll og Merkurbæir færast yfir á fimmtudaga.
- Árbæjarvegur, Bjallavegur og Landvegur ofan Hagabrautar færast yfir á fimmtudaga.
- Vestur-Landeyjar, Bakkabæir, Oddavegur og Lamhagi verða alltaf bara á föstudögum.
Hvað breytist ekki:
- Hella og Helluvað (áfram á þriðjudögum en skipta um viku við Hvolsvöll)
- Bæir vestan við Hvolsvöll, Gata, Sunnuhvoll, Tjaldhólar, Vallarkrókur og Fljótshlíð.
- Þykkvibær, Ægissíða, Lyngás, Vetleifsholtshverfi, Lækjarbraut, Rauðalækur og bæir í kringum Rauðalæk.
- Ásvegur, Þjóðólfshagi, Riddaragarður, Fosshólahringur, Landvegur að Hagabraut, Grenjar, Reiðholt og Syðri-Rauðalækur.
- Rangárvallavegur, Þingskálavegur, Gaddstaðir, Varmidalur, Selalækur og Kirkjubær.
