Oddahátíð 3. júlí

Í tilefni af 30 ára afmæli Oddafélagsins á síðasta ári bjóðum við til mikillar tónlistarhátíðar í Odda á Rangárvöllum laugardaginn 3. júlí. Sinfóníuhljómsveit Suðurlands, undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar ásamt Kvennakórnum Ljósbrá, Karlakór Rangæinga, félögum úr Kammerkór Rangæinga og Eyjólfi Eyjólfssyni einsöngvara.

Gestum býðst að kaupa afmælismerki félagsins til styrktar undirbúningi að uppbyggingu Sæmundarstofu, menningar- og fræðaseturs í Odda.

Dagskrá:

10:20 Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra opnar nýja leið um Oddabrú ásamt forstjóra Vegagerðarinnar og sveitarstjóra Rangárþings ytra. Séra Elína Hrund Kristjánsdóttir sóknarprestur í Odda flytur blessunarorð.

11:00 Helgistund í Oddakirkju. Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir

11.45 Veitingar í veislutjaldi. Kvenfélag Oddakirkju.

12:15 Ágúst Sigurðsson, formaður Oddafélagsins, setur hátíðina.

12.30 Ávarp Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra.

13:00 Sinfóníuhljómsveit Suðurlands ásamt Eyjólfi Eyjólfssyni einsöngvara, Kvennakórnum Ljósbrá, Karlakór Rangæinga og félögum úr Kammerkór Rangæinga undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar.

Í lok tónleikanna frumflytur hljómsveitin og kórarnir nýtt lag Gunnars Þórðarsonar við kvæði Matthíasar Jochumssonar: Á Gammabrekku.

Oddahátíð lýkur um kl. 14.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?