22. maí 2026
Oddastefna að vori 2026 er helguð Sæmundi fróða Sigfússyni, (1056 - 1133)
Farið verður yfir helstu niðurstöður Oddarannsóknarinnar, sem var fimm ára rannsóknarverkefni í bókmennta, sagn- og fornleifafræði, styrkt af RÍM sjóðnum (Ritmenning íslenskra miðalda) sem Ríkisstjórn Íslands stofnaði í tilefni af 75 ára afmæli lýðveldisins.
En það verður líka frábær söngur, fjörugur leikur og lifandi tónlist því sviðshópurinn Amarato, kemur með tvö atriði úr óperunni um Sæmund fróða, eftir Þórunni Guðmundsdóttur, tónskáld og textahöfund. Óperan hefur hlotið frábærar viðtökur og mikið lof gagnrýnenda og óperugesta.
Verið öll hjartanlega velkomin á óvenju fjörlega Oddastefnu í Frægarði, Gunnarsholti, húsi Lands og skógar, laugardaginn 30. maí kl. 13:00
Dagskrá:
- Ágúst Sigurðsson, formaður Oddafélagsins, býður fólk velkomið, kynnir samkomuna og segir frá Sæmundarstofu. 10 mín.
- Oddarannsókn lýkur (I):
- Helgi Þorláksson sagnfræðingur segir frá lokum Oddarannsóknar og bók á ensku um rannsóknina. 15 mín.
- Fyrirspurnir. 5 mín.
- Úr óperunni Sæmundur fróði (I)
- Fáein inngangsorð höfundar, Þórunnar Guðmundsdóttur.
- Söngur: Hafsteinn Þórólfsson baritón og Björk Níelsdóttir sópran. Sólveig Sigurðardóttir leikur með á píanó. 10 mín.
- Oddarannsókn lýkur (II):
- Kristborg Þórsdóttir fornleifafræðingur segir frá lokum Oddarannsóknar og bók á íslensku, henni tengdri. 15 mín.
- Fyrirspurnir 5 mín.
- Hlé 30 mín. Kaffi og meðlæti í boði Lands og skógar.
- Björn Bjarnason fv. ráðherra: „Hinn sagnfræðilegi Sæmundur“. 15 mín.
- Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir rektor: „Hinn þjóðfræðilegi Sæmundur og vald þekkingarinnar“. 15 mín.
- Fyrirspurnir og umræður. 10 mín.
- Úr óperunni Sæmundur fróði (II):
- Fáein inngangsorð Þórunnar Guðmundsdóttur
- Söngur: Hafsteinn Þórólfsson og Björk Níelsdóttir. Meðleikur á píanó: Sólveig Sigurðardóttir. 10 mín.
- Þórunn Guðmundsdóttir fjallar um óperuna Sæmundur fróði. 15 mín.
- Fyrirspurnir. 5 mín.
- Friðrik Erlingsson kynnir væntanlega Oddasýningu. 10 mín
- Ágúst Sigurðsson slítur Oddastefnu kl. 16.
- Kynnir er Friðrik Erlingsson