Öll börn eru mikilvæg

Öll börn eru mikilvæg

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna lögfestur á Íslandi

 

Morgunverðarfundur 20. nóvember 2013

Grand Hótel kl. 8.15-10.30

 

Allir velkomnir. Húsið opnar 7:50, og fundur hefst stundvíslega 8.15. Kostnaður kr. 2300, morgunverður innifalinn. Greiða þarf við innganginn. Vinsamlegast skráið þátttöku á netfangið: womeniniceland@womeniniceland.is

 

Dagskrá:

·         Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra:Ávarp

·         Margrét Júlía Rafnsdóttir, Barnaheill- Save the Children á Íslandi:Námsvefurinn www.barnasattmali.is

·         Eyrún María Rúnarsdóttir doktorsnemi og stundakennari: Pólskt, víetnamskt, danskt eða íslenskt ungmenni á Íslandi? Hvernig líður þeim?

·         Ingi B. Poulsen umboðsmaður borgarbúa: Umfjöllun um bann við mismunun, jafnræðisreglan, leiðbeiningarskyldan og staða barna almennt

·         Áslaug Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar og framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar: Innleiðing Barnasáttmálans í Garðabæ

·         María Rún Gunnarsdóttir, innanríkisráðuneytið:Ísland og Barnasáttmálinn

·         Pallborðsumræður

·         Fundarstjóri: Stefán I. Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi

 

Morgunverðarfundurinn er seinni fundurinn af tveimur sem haldnir eru í tilefni af lögfestingu Barnasáttmálans á Íslandi. 20. nóvember er  afmælisdagur Barnasáttmálans en þann dag eru 24 ár liðin frá því að hann var samþykktur af Sameinuðu Þjóðunum. Að fundunum standa Teymi um málefni innflytjenda, umboðsmaður barna, Barnaheill - Save the Children á Íslandi, UNICEF á Íslandi,  Námsgagnastofnun, Reykjavíkurborg, Samtökin Móðurmál og Samtök kvenna af erlendum uppruna.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?