Byggðaþróunarfulltrúi Rangárþings ytra vekur athygli á að opið er fyrir umsóknir um styrki úr Æskulýðssjóði. Umsóknarfrestur er til 15. október kl. 15:00.
Styrkir Æskulýðssjóðs eru ætlaðir til að auka möguleika æskulýðsfélaga og -samtaka til að bjóða börnum og ungmennum fjölbreyttara starf. Styrkir eru meðal annars veittir til verkefna sem unnin eru fyrir börn og ungmenni eða með virkri þátttöku þeirra, til þjálfunar forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða, nýsköpunar og samstarfsverkefna.
Hverjir geta sótt um?
Æskulýðsfélög og -samtök sem vinna með börnum og ungmennum á aldrinum 6–25 ára geta sótt um styrk. Umsókn má vera á íslensku eða ensku.
Hvernig er sótt um?
Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís og þarf umsækjandi að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
Við gerð kostnaðaráætlunar skal tilgreina heildarkostnað verkefnisins. Ef sótt er um styrki eða önnur framlög frá fleiri aðilum þarf einnig að gera grein fyrir því í umsókn.
Nánari upplýsingar og umsóknarkerfi má finna á vef Rannís.
Fyrirspurnir má senda á aeskulydssjodur@rannis.is eða í síma 515 5833.