Opin hús hjá RARIK í tilefni af 75 ára afmæli

Miðvikudaginn 15. júní verða opin hús á völdum starfsstöðvum RARIK víðsvegar um landið í tilefni af 75 ára afmæli fyrirtækisins. Þá munu starfsmenn RARIK taka á móti gestum og kynna aðstöðu og starfsemi fyrirtækisins á hverjum stað og bjóða upp á kaffi, afmælistertu og aðrar veitingar. Viðskiptavinir og aðrir velunnarar RARIK eru sérstaklega velkomnir.

Opnu húsin verða frá klukkan 16:00 til 18:00 miðvikudaginn 15. júní á eftirtöldum stöðum:

 

Borgarnes: Sólbakki 1
Stykkishólmur: Hamraendar 2
Sauðárkrókur: Borgartún 1a
Akureyri: Óseyri 9
Blönduós: Ægisbraut 3
Þórshöfn: Langanesvegur 13
Egilsstaðir: Þverklettar 2-4
Hornafjörður: Álaugarvegur 11
Fáskrúðsfjörður: Grímseyri 4
Hvolsvöllur: Dufþaksbraut 12

 

Verið velkomin og fagnið með okkur merkum áfanga í sögu RARIK.

https://www.rarik.is/

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?