Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Matvælasjóð

Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvæla um land allt. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila.

Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna. Ráðstöfunarfé Matvælasjóðs samanstendur af fjárveitingu af fjárlögum hverju sinni og öðrum tekjum eftir því sem þeim er til að dreifa. Allar upplýsingar um sjóðinn má finna hér á heimasíðu hans.

  • Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Matvælasjóð

  • Umsóknareyðublöð má nálgast hér á eyðublaðavef stjórnarráðsins

  • Umsóknarfrestur er til og með 6. júní 2021

  • Ráðstöfunarfé sjóðsins árið 2021 eru 630 milljónir króna

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?