Óskað eftir kennara/leiðbeinanda á leikskólann Heklukot

Okkur vantar kennara/leiðbeinanda á leikskólann


Ert þú jákvæður með gott skopskyn og finnst frábært að læra eitthvað nýtt? Ertu til í að takast á við áskoranir í lífinu?
Við erum að auglýsa eftir kennurum til starfa við leikskólann Heklukot á Hellu í Rangárþingi ytra.
Viðkomandi þarf að hafa góða samskiptahæfni, sýna frumkvæði, sjálfstæði, hafa metnað fyrir starfi sínu og vera tilbúin til að vinna að málörvun, uppeldi og menntun barna á leikskólaaldri í samræmi við námsskrá leikskólans og í nánu sambandi við stjórnendur leikskólans. Óskað er eftir körlum jafnt sem konum.

Hæfniskröfur:
Leyfisbréf kennara.
Góð íslenskukunnátta er skilyrði í ræðu og riti.
Hreint sakavottorð

Umsókn og ferilskrá óskast send rafrænt á inga@heklukot.is. Einnig má sjá upplýsingar um skólann á heimasíðu skólans: www.heklukot.is
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?