Óskað eftir sérkennslustjóra, leikskólakennurum og deildastjórum

Auglýst er eftir sérkennslustjóra, leikskólakennurum og deildastjórum til starfa við leikskólann Heklukot á Hellu í Rangárþingi ytra sem er um 100 km frá Reykjavík.
Heklukot er fimm deilda leikskóli með í kringum 80 nemendur frá eins til fimm ára.
Unnið er eftir markmiðum Skóla á grænni grein sem fela í sér sambærilegar áherslur og í Aðalnámskrá leikskóla (2011). Einnig er unnið eftir markmiðum Heilsustefnunnar sem stuðlar að heilsueflingu í leikskólasamfélaginu með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik.
Í Heklukoti er leikskólakennurum boðið uppá aukinn undirbúningstíma, fá samtals 9 tíma m.v. 100% starf.

Leitað er að fagmenntuðum, jákvæðum kennurum (eða öðru uppeldismenntuðu fólki), körlum eða konum, með góða samskiptahæfni, eru heilsuhraustir, hafa góða íslenskukunnáttu, sýna frumkvæði, sjálfstæði, hafa metnað fyrir starfi sínu og eru tilbúnir til að vinna að málörvun, uppeldi og menntun barna á leikskólaaldri í samræmi við námsskrá og í nánu sambandi við stjórnendur leikskólans.

Aðstoð við leit að húsnæði er í boði sé þess þörf.

Umsókn og ferilskrá óskast send rafrænt á heklukot@heklukot.is fyrir 10. maí nk.
Nánari upplýsingar veitir Auður Erla Logadóttir leikskólastjóri í síma 4887045, netfang: heklukot@heklukot.is og einnig má sjá upplýsingar um skólann á heimasíðu skólans: Heimasíða Leikskólans Heklukots

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?