26. október 2026
Auglýst er eftir stuðningskennara til starfa við leikskólann Heklukot á Hellu.
Allar umsóknir verða skoðaðar.
Áherslur stuðningskennara og starfsfólks eru að:
- Sinna sérstaklega umönnun og kennslu barna í samráði við deildarstjóra og sérkennslustjóra inni á deild.
- Taka þátt í að móta, meta og skrá framfarir.
- Starfa samkvæmt dagskipulagi leikskóla sem felur í sér matar- og hvíldartíma, útiveru, ýmsa leiki og skapandi verkefni fyrir börnin undir leiðsögn leikskólakennara eða annarra starfsmanna.
Um er að ræða 60-80 % starf.
Menntun, hæfni og reynsla:
- Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun, BS í sálfræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
- Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum æskileg.
- Reynsla af sérkennslu.
- Góð íslenskukunnátta.
- Reynsla af starfi í leikskóla.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
- Góð tölvukunnátta.
Umsókn og ferilskrá óskast send rafrænt á heklukot@heklukot.is. Nánari upplýsingar veitir Inga Stefánsdóttir leikskólastjóri í síma 4887049, netfang: inga@heklukot.is og Vigdís L. Árnadóttir serkennsla@heklukot.is
Umsóknarfrestur er til 6. nóvember 2026.