Óskað eftir tilnefningum - íþróttakona og -maður ársins, ungmennaverðlaun ársins og íþróttaafrek 202…

Heilsu-, íþrótta- og tómstundanefnd Rangárþings ytra auglýsir eftir tilnefningum um íþróttakonu og -mann ársins 2026 , ungmennaverðlaun ársins og fyrir framúrskarandi árangur eins og t.d. landsliðssæti, Íslandsmeistara- alþjóðlegan titil.

Ungmenna- og íþróttafélög í sveitarfélaginu tilnefna sína íþróttamenn með lýsingu á afrekum tilnefnds íþróttamanns.

Einnig gefst almenningi tækifæri til að senda inn og tilnefna íþróttakonu og mann ársins ásamt íþróttaafrekum.

Þó skal fylgt eftir 2. grein reglugerðar um val á íþróttamanni ársins sem samþykktar voru 2026.

Sjá reglugerð í heild sinni hér.

Skilyrði er að viðkomandi eigi lögheimili í Rangárþingi ytra og sé a.m.k. 16 ára á árinu sem veitt er fyrir (2026). Gerð er krafa til þess að íþróttamaðurinn sé góð fyrirmynd innan vallar sem utan.

Auk kjörs á íþróttamanni ársins skal veita ungmennaverðlaun ársins fyrir framúrskarandi árangur. Verðlaunin eru veitt ungmennum á aldrinum 13 til 18 ára annars vegar í flokki karla og hins vegar í flokki kvenna. Um tilnefningar og mat á árangri ungmenna gilda að öðru leyti sömu reglur og um aðra flokka eftir því sem við á. Sami einstaklingur getur ekki orðið íþróttamaður eða íþróttakona ársins og hlotið ungmennaverðlaun ársins.

Einnig er veitt fyrir íþróttaafrek eða framúrskarandi árangur eins og t.d. landsliðssæti, Íslandsmeistara- alþjóðlegan titil, þar eru engin aldurstakmörk.

Allar tilnefningar skal senda fyrir 1. desember til íþrótta- og fjölmenningarfulltrúa á netfangið johann@ry.is

Einnig er hægt að skila inn tillögum með því að fylla út þetta eyðublað.