Óskað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna

Rangárþing ytra óskar eftir tilnefningum frá íbúum sveitarfélagsins í eftirtöldum flokkum:

Fegursta lögbýlið
Fegursti garðurinn í þéttbýli
Fegursta umhverfi fyrirtækis

Íbúar eru hvattir til að senda inn tilnefningar og benda á þá staði sem þeim þykja skara fram úr með fallegu, snyrtilegu og vel hirtu umhverfi.

Tilnefningar má senda með tölvupósti annaðhvort til Jóhönnu, formanns Umhverfis-, samgöngu- og hálendisnefndar, á johanna@hellar.is eða í afgreiðslu sveitarfélagsins á ry@ry.is.

Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með þriðjudeginum 11. ágúst 2026.

Vinsamlegast takið fram í hvaða flokki tilnefningin er og heiti eða heimilisfang viðkomandi staðar.