19. febrúar 2026
Öskudagurinn er með skemmtilegustu dögum ársins og heimsóknir krakkanna lífga svo sannarlega upp á tilveruna hjá öllum sem taka á móti þeim. Það var ansi napurt og snjófjúk en börnin létu það nú ekki stoppa sig í að skunda um þorpið þvert og endilangt á nammiveiðum.
Hingað á skrifstofu Rangárþings ytra kom fjöldi barna sem tóku lagið og fengu að launum gotterí í pokann sinn.
Það var áberandi hvað krakkarnir voru kurteisir og flottir, sungu hátt og snjallt og leyfðu okkur að smella af sér myndum.
Búningavalið var einnig afar fjölbreytt og gaman að sjá hugmyndaflugið sem hafði greinilega átt sér stað við undirbúninginn.
Takk fyrir komuna öll og hér fylgja nokkrar myndir frá deginum.





