Óskum eftir upplýsingum um fyrirtæki í Rangárþingi ytra

Markaðs- og kynningarfulltrúi sveitarfélagsins er þessi misserin að taka saman upplýsingar um þá fjölbreyttu starfsemi sem er í sveitarfélaginu. Við óskum  eftir því að fyrirtæki sendi upplýsingar  og myndir/logo í gegnum þar til gert eyðublað sem finna má hér.  

Svo upplýsingarnar séu réttar er mikilvægt að þær komi beint frá þeim aðila sem ber ábyrgð á viðkomandi starfsemi.

Upplýsingarnar verða notaðar til kynningar á fyrirtækjunum, kynningar á sveitarfélaginu, kortagerð og fl.

Við hvetjum öll fyrirtæki til þess að senda inn upplýsingar og myndir hvort sem viðkomandi er með rekstur á eigin kt eða fyrirtæki. Bændur, verslanir, ferðaþjónustuaðilar, smiðir og allar aðrar greinar.

Ef einhverjar spurningar eru vegna verkefnisins ekki hika við að hafa samband í gegnum netfangið eirikur@ry.is eða í s: 4887000.

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?