Lið Byko sigrar Parafimi Víking Brugghús og Coca-Cola í Suðurlandsdeildinni 2022. 56 knapar voru skráðir til leiks sem öttu kappi í 28 pörum. Hvert par skipað einum áhugamanna og einum atvinnumanni.
Sjaldan eða aldrei hefur keppni í Parafimi verið jafn sterk og hún var s.l. þriðjudag. Atriðin vel undirbúin og sýningarnar frábærar!
Hægt er að sjá Parafimi Suðurlandsdeildarinnar á Alendis TV.
Þau Elin Holst og Sævar Örn Sigurvinsson leiddu eftir forkeppni og liðsfélagar þeirra úr liði Byko þar rétt á eftir. Það fór svo að liðsfélagar þeirra Brynja Amble og Árni Sigfús Birgisson skákuðu þeim og sigruðu Parafimi 2022 með frábæra sýningu. Lið Byko var því í 1. og 2. Sæti og leiðir því liðakeppnina eftir fyrstu grein!
Eftir fyrstu grein er því staðan í liðakeppninni eftirfarandi
|
Sæti |
Lið |
Stig |
|
1 |
Byko |
110 |
|
2 |
Krappi |
100 |
|
3 |
Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún |
90 |
|
4 |
Nonnenmacker |
86 |
|
5 |
Smiðjan Brugghús |
82 |
|
6 |
Húsasmiðjan |
63 |
|
7 |
Slippfélagið |
59 |
|
8 |
Töltrider |
58 |
|
9 |
MúrX/Klúbbhús |
42 |
|
10 |
Hemla/Hrímnir/Strandarhöfuð |
34 |
|
11 |
Vesturkot |
32 |
|
12 |
Vöðlar/Snilldarverk/Sumarliðabær |
28 |
|
13 |
Fet |
16 |
|
14 |
Efsta-Sel |
6 |
Niðurstöður úrslita voru eftirfarandi:
| Brynja Amble Gísladóttir | Silfra frá Syðri-Gegnishólum | Árni Sigfús Birgisson | Fjöður frá Hrísakoti | Byko | 7,25 |
| Elin Holst | Spurning frá Syðri-Gegnishólum | Sævar Örn Sigurvinsson | Huld frá Arabæ | Byko | 7,10 |
| Sigurður Sigurðarson | Rauða-List frá Þjóðólfshaga 1 | Hallgrímur Óskarsson | Ný Dönsk frá Lækjarbakka | Krappi | 6,98 |
| Arnhildur Helgadóttir | Draumhyggja frá Eystra-Fróðholti | Hafþór Hreiðar Birgisson | Tónn frá Hjarðartúni | Árbæjarhjáleiga/Hjarðartún | 6,97 |
| Lea Schell | Silfá frá Húsatóftum 2a | Sara Pesenacker | Sefjun frá Skíðbakka III | Krappi | 6,87 |
| Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir | Dökkvi frá Miðskeri | Vilborg Smáradóttir | Sigur frá Stóra-Vatnsskarði | Smiðjan Brugghús | 6,79 |
Heildarniðurstöður verða birtar á Facebook síðu Suðurlandsdeildar: www.facebook.com/Suðurlandsdeild.
Við viljum þakka öllum sem koma að Suðurlandsdeildinni, styrktaraðilum, sjálfboðaliðum og öðrum. Við erum í frábæru samstarfi við hestabraut Fjölbrautarskóla Suðurlands sem rita hjá dómurum ásamt því að sinna öðrum verkefnum.
Víking Brugghús og Coca-Cola voru aðalstyrktaraðilar kvöldsins og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir!
Næsta grein er fjórgangur ZO-ON þriðjudaginn 15. mars, fylgist með á Facebook síðu Suðurlandsdeildarinnar.