Stóri plokkdagurinn fór fram um allt land 26. apríl síðastliðinn og við í Rangárþingi ytra létum ekki okkar eftir liggja.
Viðburðurinn var unninn í samvinnu sveitarfélaganna í Rangárvallasýslu, Rótarýklúbbs Rangæinga og Náttúruverndarstofnunar og gekk eins og í sögu.
Mikið magn sorps endaði í pokum plokkara og var komið í gám sem Sorpstöð Rangárvallasýslu sá um að koma fyrir hjá sparkvellinum á Hellu.
Áætla má að í það minnsta 50 manns hafi verið á plokkinu víðsvegar um sveitarfélagið, til dæmis fréttist af því að vaskar konur úr Kvenfélaginu Einingu hefðu plokkað meðfram Árbæjarvegi með góðum árangri.
Endilega sendið okkur línu um fleiri plokkara sem hafa verið á ferðinni og hreinsað til í náttúrunni.
Að plokki loknu var öllum boðið í grillaðar pylsur og svalandi drykki í boði Rótarýklúbbs Rangæinga og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir samstarfið.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá deginum.



