Stóri plokkdagurinn verður haldinn um land allt 26. apríl næstkomandi.
Rangárþing ytra, Rangárþing eystra og Ásahreppur taka öll þátt og senda íbúum og fyrirtækjum hvatningu um að hreinsa til í sínu nærumhverfi.
Gámur verður við sparkvöllinn á Hellu og hægt er að skila sorpi á grenndarstöðinni neðan við Landvegamót - munum að setja ekkert nema sorp í glærum pokum í gámana!
Hægt verður að nálgast glæra poka og bensli við sparkvöllinn á Hellu frá kl. 9:30 á plokkdeginum og í söluskálanum á Landvegamótum verður einnig hægt að fá hanska og poka.
Viðburðurinn er skipulagður frá kl. 10-12 en auðvitað má plokka dagana á undan og koma svo með pokana í gáminn þegar hann kemur.
Að plokki loknu verðar grillaðar pulsur í boði fyrir alla plokkara við sparkvöllinn á Hellu kl. 12 - Rótarýklúbbur Rangæinga skaffar mat á grillið en Rótarýhreifingin er samstarfsaðili stóra plokkdagsins og kemur að skipulagi og framkvæmd hans.
Viðburðurinn er nú einnig haldinn í samstarfi við Náttúruverndarstofnun sem varð til við sameiningu Vatnajökulsþjóðgarðs og starfsemi náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar. Stofnunin fer með stjórnsýslu, eftirlit og önnur verkefni á sviði náttúruverndar. Náttúruverndarstofnun tók til starfa þann 1. janúar 2025 og höfuðstöðvar hennar eru staðsettar á Austurvegi 4 á Hvolsvelli.
Fjölmennum, hreinsum til og heiðrum náttúruna.
