Rafrænir álagningarseðlar fasteignagjalda

Nú hafa álagningarseðlarnir verið birtir á island.is. 

Álagningaseðlar fasteignagjalda eru ekki lengur sendir út á pappír heldur eru þeir einungis aðgengilegir í gegnum www.island.is. Allt fyrir umhverfið!

Hvernig nálgast ég Álagningarseðilinn minn? (lesist til enda)

1. Ferð inná www.island.is

2. Skráir þig inn á "mínar síður"

3. Smellir á "Pósthólf - er bréf til þín?"

4. Þar er smellt á "Álagningarseðill fasteignagjalda 2022" sem er að finna þar í listanum.

Þar er hægt að hlaða álagningarseðli niður sem pdf eða prenta hann út.

Ef einhverjir hafa ekki tök á að nálgast sinn álagningarseðil vinsamlegast hafið samband við skrifstofu Rangárþings ytra í síma 4887000 eða á netfangingu ry@ry.is.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?