Rangæingamót í skák 16 ára og yngri

Föstudaginn 30. nóvember Kl:16.00 verður Rangæingamót í skák fyrir 16 ára og yngri haldið í Grunnskólanum á Hellu. Tefldar verða 5 umferðir eftir monrad-kerfi og verður umhugsunartíminn 10 mín á keppanda í hverri skák.

Ungmennafélagið Hekla sér um keppnishaldið og verður öllum keppendum boðið uppá léttar veitingar að keppni lokinni.

Verðlaun verða veitt í þremur flokkum:

  • 9 ára og yngri (1-4 bekkur)
  • 10-12 ára (5-7 bekkur)
  • 13-16 ára (8-10 bekkur)

Skáning í mótið fer fram á staðnum eða hjá Guðmundi í síma 868-1188 eða með tölvupósti á netfangið: broi1970@mi.is (Tilgreina þarf, nafn, aldur, bekk og félag)

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?