Rangárþing ytra hafnar ákvörðun kjararáðs frá 29. október s.l.

Á fundi sveitarstjórnar 9. nóvember s.l. var samþykkt tillaga um að þóknun kjörinna fulltrúa sveitarstjórnar og fulltrúa í nefndum sveitarfélagsins ásamt launum sveitarstjóra, hækki ekki til samræmis við síðustu ákvörðun kjararáðs frá 29. október s.l. heldur miðist áfram við fyrri ákvörðun kjaranefndar um þingfarakaup og þau hlutföll sem miðað hefur verið við hjá sveitarfélaginu þar til Alþingi hefur tekið málið til umfjöllunar.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?