Frá afhendingu viðurkenninga // mynd: Silla Páls
Frá afhendingu viðurkenninga // mynd: Silla Páls

Viðurkenningarhátíð Jafnvægisvogarinnar 2025 , Jafnrétti er ákvörðun, haldin við hátíðlega athöfn

90 fyrirtæki, 22 opinberir aðilar og 16 sveitarfélög hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar, hreyfiaflsverkefnis FKA, árið 2025.

Frábær árangur á meðal þátttakenda í Jafnvægisvog FKA

Jafnvægisvogin, hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), hélt nýlega sína árlegu viðurkenningarathöfn en athöfnin var fyrst haldin árið 2019. Í ár er fjöldi viðurkenningarhafa alls 128 en það eru þeir þátttakendur sem náð hafa markmiði verkefnisins um jöfn kynjahlutföll í framkvæmdastjórn / efsta lagi stjórnunar.

 

Dr. Ásta Dís Óladóttir, prófessor við Háskóla Íslands og formaður Jafnvægisvogarinnar opnaði hátíðina og hrósaði stjórnendum fyrir eftirtektarverðan árangur í jafnréttismálum. Gunnar Gunnarsson, forstöðumaður greiningar og ráðgjafar hjá Creditinfo, flutti fræðandi erindi undir heitinu „Er þetta ekki komið?“ og dómsmálaráðherra, Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, flutti áhugavert og hvetjandi ávarp.

 

Að hreyfiaflsverkefninu standa, auk FKA, dómsmálaráðuneytið, Creditinfo, Deloitte, PiparTBWA, Ríkisútvarpið, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Sjóvá

 

Níutíu fyrirtæki, tuttugu og tveir opinberir aðilar og sextán sveitarfélög hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogin veitti viðurkenningar til níutíu fyrirtækja, tuttugu og tveggja opinberra aðila og sextán sveitarfélaga úr hópi þeirra 253 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu.

Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið. Stór hluti þeirra þátttakenda sem hafa skrifað undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar hafa náð góðum árangri á þessu sviði.

 

„Það er ánægjulegt að sjá hversu mörg fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög í Jafnvægisvog FKA sinna jafnréttismálum af metnaði. Þrátt fyrir þennan góða árangur er ljóst að enn er langt í land með að ná fullu jafnrétti. Það er mikilvægt að hvert og eitt fyrirtæki, stofnun eða sveitarfélag skoði stöðu sína og krefjist þess að kynjahlutfall í æðstu stjórnunarstöðum sé sem jafnast, því jafnrétti er ekkert annað en ákvörðun“ að sögn Bryndísar Reynisdóttur verkefnastjóra Jafnvægisvogarinnar.

 

Jafnrétti hefur bein áhrif á umhverfið

Á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar árið 2020 var kynntur nýr Jafnréttislundur FKA, sem Skógræktarfélag Reykjavíkur útvegaði Jafnvægisvoginni. Viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA fylgir tré að gjöf til gróðursetningar í Jafnréttislundi FKA, sem viðurkenningarhafar gróðursetja sjálfir í lundinum, föstudaginn

  1. október. Með því geta þátttakendur lagt sitt af mörkum til að draga úr kolefnisfótspori og jafnframt sýnt stuðning við jafnréttismál með táknrænum hætti.

 

Við val á trjám í lundinn er horft til þess að velja margar ólíkar tegundir af trjám, sem tákn um þann fjölbreytileika sem Jafnvægisvogin stuðlar að. Það er markmið Jafnvægisvogarinnar að endurtaka þetta árlega og væri ánægjulegt að sjá hlíðina fyllast á næstu árum, með auknu jafnrétti.

 

Eftirfarandi fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar í ár:

1912

FSRE

Olís ehf

A4

GG Verk ehf

Orkan IS ehf

AGR

Guðmundur Arason ehf

Orkusalan

Akraneskaupstaður

Hafnarfjörður

Orkuveita Reykjavíkur

Akureyrarbær

Hagstofa Íslands

Ósar - lífæð heilbrigðis hf.

Alþjóðasetur ehf.

Harpa

PricewaterhouseCoopers ehf.

APRÓ

Háskóli Íslands

Rafal ehf

Atmonia ehf

Háskólinn á Akureyri

Rangárþing eystra

atNorth

Háskólinn í Reykjavík

Rangárþing ytra

AwareGO ehf

Heilbrigðisstofnun Austurlands

Rarik

Bakkinn vöruhótel

Hirzlan ehf

Reir Verk ehf.

Bananar

Hornsteinn

Rekstrarvörur ehf

Björgun_Sement

Hreint ehf

Reykjafell ehf

BL ehf

HS Orka

Reykjanesbær

Bláa Lónið

Húnabyggð

RÚV ohf

Borgarbyggð

IKEA

Samkaup hf.

Borgarleikhús

indó

Seðlabanki Íslands

Brandenburg

Inkasso ehf

Seltjarnarnesbær

Bústólpi ehf.

Isavia ohf

Sjóvá

Carbfix

Íslandsbanki

Skatturinn

Ceo Huxun

Íslandshótel

Skrifstofa Alþingis

Coca-Cola Europacific Partners Ísland

Íslenska Gámafélagið

Sólar ehf

COWI á Íslandi

ÍSOR

Strætó bs

Crayon Iceland ehf

Ívera ehf.

Sveitarfélagið Árborg

Creditinfo

Krónan

Sveitarfélagið Fjallabyggð

Dagar hf

Land og skógur

Sveitarfélagið Skagaströnd

Deloitte ehf

Lota

Sveitarfélagið Ölfus

Destination Complete ehf.

LSR

Sýn hf.

dk hugbúnaður

Lyf og heilsa

Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu

ECIT Virtus

Lyfja

Taktikal ehf.

EFLA hf

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Tixly

Eignarhald ehf. - PiparTBWA

Matís ohf

Travel Connect

Elkem Ísland

Maven ehf.

Tryggja

ELKO

Miðbæjarhótel/Center Hotels ehf.

Vegagerðin

Fastus

Mosfellsbær

Veitur

Festi hf.

Motus

Verkís

Félagsbústaðir hf.

Múlaþing

Verzlunarskóli Íslands

Fiskistofa

Nasdaq Iceland

Vesturbyggð

Five Degrees EHf

Náttúruverndarstofnun

Vinnueftirlitið

Fjársýsla ríkisins

Norðurál ehf.

VÍS tryggingar hf.

Fjölbrautaskóli Suðurlands

Norðurorka hf.

Wise lausnir

Fjölbrautaskóli Suðurnesja

Nova

Þjóðskrá

Fjölbrautaskólinn við Ármúla

Nói Síríus hf

 

 

Allar helstu upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu verkefnisins: https://www.fka.is/verkefni/jafnvaegisvogin

 

Frekari upplýsingar veitir: Bryndís Reynisdóttir verkefnastjóri Jafnvægisvogar FKA í síma 868-4682 eða í gegnum netfangið: jafnvaegisvogin@fka.is