Rangárþing ytra hlýtur viðurkenningu jafnvægisvogarinnar þriðja árið í röð

56 fyrirtæki, 11 sveitarfélög og 22 opinberir aðilar hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar, hreyfiaflsverkefnis FKA. Á árinu 2023 bættust við 31 nýr þátttakandi í hóp þeirra aðila sem taka þátt í Jafnvægisvoginni.

Frábær árangur á meðal þátttakenda í Jafnvægisvog FKA

Jafnvægisvogin, hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), hélt í dag stafrænu ráðstefnuna Við töpum öll á einsleitninni - Jafnrétti er ákvörðun, sem streymt var í beinni útsendingu á vefsíðu RÚV. Þar kynnti Eliza Reid viðurkenningarhafa Jafnvægisvogarinnar, en það eru þeir þátttakendur sem hafa náð að jafna kynjahlutfall í framkvæmdastjórnum. Í ár er það metfjöldi eða 89 viðurkenningahafar.
Að hreyfiaflsverkefninu standa auk FKA, forsætisráðuneytið, Creditinfo, Deloitte, Pipar\TBWA, Ríkisútvarpið, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Sjóvá Fimmtíu og sex fyrirtæki, ellefu sveitarfélög og tuttugu og tveir opinberir aðilar hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogin veitti viðurkenningar til fimmtíu og sex fyrirtækja, ellefu sveitarfélaga og tuttugu og tveggja opinberra aðila úr hópi þeirra 239 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu. Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið. Stór hluti þeirra þátttakenda sem hafa skrifað undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar hafa náð góðum árangri á þessu sviði. „Það hefur verið gaman að fylgjast með Jafnvægisvoginni stækka undanfarin ár og jafnréttismál verða að mikilvægu forgangsmáli hjá okkar þátttakendum.

Þátttakendur taka stoltir við viðurkenningu og hafa verið duglegir að vekja athygli á jafnréttismálum innan sinna vinnustaða með ýmsum hætti. Þrátt fyrir það eru konur einungis 21% framkvæmdastjóra í atvinnulífinu hér á landi og 24% séu stjórnendur stofnana og sveitafélaga tekin með. Þetta hlufall hefur lítið haggast á undanförnum árum líkt og sýnt var fram á í þeim erindum sem flutt voru á ráðstefnunni” að sögn Bryndísar Reynisdóttur verkefnastjóra Jafnvægisvogarinnar. Jafnrétti hefur bein áhrif á umhverfið Á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar 2020 var kynntur nýr Jafnréttislundur FKA, sem Skógræktarfélag Reykjavíkur útvegaði Jafnvægisvoginni. Lundurinn er staðsettur við aðalinnganginn í Heiðmörk, Vífilsstaðamegin, og er það fyrsta sem fólk sér þegar það gengur inn í Heiðmörk. Valdar voru margar tegundir af trjám sem tákn um þann fjölbreytileika sem Jafnvægisvogin er að stuðla að. Í ár verða gróðursett 89 tré eitt fyrir hvern viðurkenningarhafa árið 2023 og verður þá búið að setja niður samtals 262 tré í Jafnréttislundinum á síðustu 4 árum. Það er markmið Jafnvægisvogarinnar að endurtaka þetta árlega og væri ánægjulegt að sjá hlíðina fyllast á næstu árum, með auknu jafnrétti.

Aðgengileg og skýr framsetning upplýsinga

Jafnvægisvogin heldur úti mælaborði sem er ætlað að halda utan um tölfræðilegar upplýsingar um jafnrétti. Þannig er hægt að tryggja aðhald og sýna stöðuna eins og hún er hverju sinni. Í mælaborði Jafnvægisvogarinnar koma fram allar helstu upplýsingar um stöðu kynjanna í íslensku atvinnulífi, svo sem kynjahlutföll stofnenda fyrirtækja, framkvæmdastjóra og stjórna. Þar má einnig finna upplýsingar um kynjahlutföll við brautskráningar úr háskólum, stöðu kynjanna innan atvinnugreina og GemmuQ kynjakvarðann fyrir skráð félög á markaði. Í mælaborðinu sem að Creditinfo, Deloitte og Jafnvægisvogarráðið hafa þróað eru upplýsingarnar gerðar aðgengilegar á einfaldan og skýran hátt.

Bætist í hóp fyrirtækja og sveitarfélag sem sjá sér hag í að vinna með Jafnvægisvoginni

Mikill vilji hefur verið hjá fyrirtækjum, sveitarfélögum og opinberum aðilum að vinna að jafnréttismálum þegar kemur að æðstu stjórnendum. Þátttakendur Í Jafnvægisvoginn eru orðnir 239 talsins.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?