Rangárþing ytra og Knattspyrnufélag Rangæinga endurnýja þjónustusamning

Jón Þorberg Steindórsson starfandi formaður Knattspyrnufélags Rangæinga og Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri Rangárþings ytra við undirritun samningsins. Viðeigandi þótti að vera með æfingatreyju frá Dagnýju Brynjarsdóttur landsliðskonu í fótbolta á mynd þar sem hún er ein af þremur landsliðskonum Íslands í knattspyrnu sem hófu feril sinn hjá KFR.

Rangárþing ytra og Knattspyrnufélag Rangæinga hafa nú endurnýjað þjónustusamning vegna útbreiðslu knattspyrnu í íþróttastarfi barna og unglinga og er hann til þriggja ára. Þjónustusamningnum er ætlað að efla samstarf milli sveitarstjórnar Rangárþings ytra og Knattspyrnufélags Rangæinga og tryggja öflugt íþróttastarf fyrir börn og unglinga í sveitarfélaginu. Jafnframt er samningnum ætlað að tryggja enn frekar starfsemi Knattspyrnufélags Rangæinga enda er sveitarstjórn þeirrar skoðunar að það sinni öflugu og viðurkenndu forvarnarstarfi. Knattspyrnufélag Rangæinga hefur sannað það að þar er unnið virkilega vandað starf, m.a. hafa þrjár konur sem byrjuðu sinn feril hjá félaginu hafa komist í landslið Íslands í knattspyrnu.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?