Rangárþing ytra og Umf. Hekla skrifa undir þjónustusamning

Fimmtudaginn 18. júlí skrifuðu fulltrúar sveitarfélagsins og Umf. Heklu, þau Drífa Hjartardóttir og Guðmundur Jónasson, undir þjónustusamning vegna útbreiðslu íþrótta- og tómstunda í skólastarfi og Rangárþingi ytra. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2013 og er til fimm ára. Þjónustusamningurinn felur í sér árlega greiðslu frá Rangárþingi ytra til Umf. Heklu fyrir ákveðin skilgreind verkefni. Verkefnin eru m.a. samfella í skólastarfi, umsjón með sumarnámskeiðum og efling heilbrigðra samverustunda fjölskyldna í sveitarfélaginu. Umf. Hekla fær aðgang að öllum íþróttamannvirkjum sveitarfélagsins fyrir starfsemina og eru öll börn sem iðka íþróttir á vegum Umf. Heklu tryggð af sveitarfélaginu.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?