Reynir Jónsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri fræðslumála hjá Odda bs. og hefur hann störf 1. september næstkomandi.
Starfið var auglýst 11. maí síðastliðinn og var umsóknarfrestur til 25. maí. Verkefnastjóri fræðslumála mun gegna lykilhlutverki í stuðningi við stjórnendur skóla Odda bs., stefnumótun, rekstri og samhæfingu fræðslumála.
Reynir er Cand. Oecon. í viðskiptafræði með áherslu á reikningshald og fjármál og með MSc-gráðu í stjórnun og stefnumótun, þar sem sérsvið hans var stjórnun, stefnumótun og nýsköpun í opinberum rekstri.
Hann býr yfir víðtækri stjórnunar- og rekstrarreynslu úr bæði opinberum rekstri og atvinnulífi. Reynir starfaði um árabil sem framkvæmdastjóri Strætó bs. þar sem hann bar meðal annars ábyrgð á rekstri, fjármálum, mannauðsmálum og stefnumótun og leiddi umfangsmikið umbóta- og breytingastarf.
Hann hefur jafnframt sjö ára reynslu sem sjálfstæður stjórnunar- og rekstrarráðgjafi og mikla reynslu af ráðgjöf og stuðningi við stjórnendur, uppbyggingu starfshátta, mannauðsmálum og breytingastjórnun.
Frá árinu 2016 hefur Reynir starfað hjá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu sem fjármálasérfræðingur og leiðtogi opinberrar stefnumótunar. Þar hefur hann meðal annars sinnt fjárhagsáætlanagerð, greiningum, stefnumótun og ráðgjöf við stjórnendur stofnana.
Reynir hefur því víðtæka reynslu sem nýtist vel í því fjölbreytta starfi sem fram undan er á vettvangi fræðslumála hjá Odda bs.