04. júní 2026
Rotþróatæming er hafin í Rangárþingi ytra. Tæmingar hófust þann 2. júní og gert er ráð fyrir að vinna í Rangárþingi ytra taki u.þ.b. 6 vikur. Verið er að vinna með tæmingarsvæði 1, bláa svæðið, sem er frá Landeyjum í suðri, milli Rangáa og upp fyrir Næfurholt í norðri. Byrjað verður að sunnanverðu og unnið til norðurs.
Óskað er efir því að hlið verði skilin eftir opin á þessu tímabili.
Mikilvægt er að aðgengi að rotþróm sé gott og að rotþróin sé vel merkt.
Gott er að hafa í huga:
- Að seyrubíll komist að rotþró vegna trjágróðurs, klippa / grisja ef þarf.
- Aðgengi að rotþrónni sé gott og stútur sjáist vel, merkja með flaggi eða priki.
- Stútur þarf að lágmarki vera 110mm.
- Ekki er hægt að tæma rotþrær ef læst hlið eru á leiðinni.
Hægt er að sjá stöðu losunar á kortasjá Rangárþings ytra (www.map.is/ry) með því að fara á meðfylgjandi slóð og haka í veitur, rotþrær og tæmingarsvæði.
Öllum fyrirspurnum er svarað í gegnum ry@ry.is.
