Sækja skal um húsaleigubætur fyrir 15. janúar

Skv 2.mgr.10.gr laga um húsaleigubætur nr. 138/1997 skal sækja um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og gildir umsóknin til ársloka.

 

Eftirfarandi gögn þurfa að fylgja endurnýjun umsóknar um húsaleigubætur fyrir árið 2016:

  *Staðfest afrit af síðasta skattframtali þeirra sem lögheimili/aðsetur eiga í íbúðinni.
  *Launaseðlar umsækjenda og þeirra sem lögheimili/aðsetur eiga í íbúðinni,  þriggja síðustu mánaða.

  *Staðfesting frá skóla vegna náms umsækjanda.

 

Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu sveitarfélagsins eða á skrifstofunni. 

 

Umsókn skal hafa borist skrifstofu Rangárþings ytra, Suðurlandsvegi 1, 850 Hellu, eigi síðar en 15. janúar 2016

 

Skrifstofa Rangárþings ytra

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?