Saga og andi mætast: Flóki viskí lítur dagsins ljós eftir fimm ára þroskun í Hellunum á Hellu

Í dag, 22. maí, verður tímamótum fagnað í íslenskri viskígerð þegar þremur tunnum af sérstöku Flóka viskíi verða tappaðar á flöskur eftir fimm ára þroskun í Hellunum á Hellu.

Verkefnið er samstarf Eimverk Distillery og Caves of Hella og hefur vakið athygli bæði meðal viskíunnenda og ferðamanna undanfarin ár. Tunnurnar hafa verið geymdar djúpt inni í manngerðu sandsteinshellunum þar sem náttúrulegur stöðugleiki í hita- og rakastigi hefur skapað afar sérstakar aðstæður til þroskunar.

Að sögn aðstandenda hefur svokallaður „Angel’s Share“, það magn áfengis sem gufar upp á meðan viskí þroskast, verið óvenju hátt.

„Það má leiða líkum að því að draugarnir sem sagan segir að byggi hellana hafi verið
duglegir að smakka,“ segja forsvarsmenn verkefnisins léttir í bragði.

Niðurstaðan er tunnustyrkt viskí, um 53,5% alc/vol, með djúpum og sérstökum karakter sem mótast hefur af íslenskum aðstæðum og sögu staðarins.

Tugþúsundir hafa fylgst með tunnunum

Á síðustu fimm árum hafa tugþúsundir gesta skoðað tunnurnar í hellunum og fræðst um framleiðslu Flóka viskís, sem er unnið úr 100% íslensku byggi úr nærumhverfi Hellu og kennt við Hrafna-Flóka.

Samkvæmt Eimverki er um að ræða líklega „mest skoðuðu viskítunnur Íslandssögunnar.“

Þrjár eikartunnur, hver um sig 200 lítrar að stærð, mynda þetta takmarkaða upplag sem verður aðeins fáanlegt í litlu magni.

Nýtt eimingarhús rís við Hellu

Forsvarsmenn Eimverks segja verkefnið einnig marka brú milli fortíðar og framtíðar.

„Þetta verkefni tengir okkur órjúfanlega við upprunann og íslenska menningarsögu,“ segir talsmaður Eimverk Distillery. „Á sama tíma horfum við fram á veginn þar sem nýtt eimingarhús Eimverks rís nú í Bjálmholti við Hellu.“

Áætlað er að nýja eimingarhúsið opni sumarið 2027 og verði jafnframt áningarstaður fyrir ferðamenn.

Fyrsta íslenska viskígerðin

Eimverk Distillery var stofnað árið 2009 og er fyrsta viskígerð Íslands sem framleiðir viskí úr 100% íslensku byggi. Flóki viskí hefur á síðustu árum hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna og vakið athygli fyrir sérstakan íslenskan karakter.

Hellarnir á Hellu teljast meðal merkustu manngerðu hellakerfa landsins og eru einn vinsælasti menningarsögulegi áfangastaður Suðurlands.